föstudagur, október 16, 2009

Hvað er Ögmundur?

Sögusvið:
Læknastöðin í Glæsibæ 3ju hæð.

Ég: "Góðan dag, ég á pantaðan tíma hjá Einari Thoroddsen, hálf, nef og eyrnalækni".
Kona í afgreiðslu: "Kennitala?"
Ég: "080364-4079".
Kona í afgreiðslu: "Já, fáðu þér sæti, Einar kemur og kallar þig inn sjálfur".

10 mínútum og nokkrum tímaritum síðar:
Einar: "Auðunn Valsson!"
Ég: "Já, takk!".
Einar: "Sæll, (tekur í hönd mína) gjörðu svo vel". "Hvað get ég gert fyrir þig?"
Ég: " Ég er búinn að vera með óþægindi og verk á ákveðnum stað í hálsinum þegar ég kyngi, tala eða ræski mig, í 5 vikur".
Einar: "Við hvað starfar þú, Auðunn?"
Ég: "Ég er matreiðslumaður".
Einar: Eru matreiðslumenn mikið í tölvu?"
Ég: "Sumir".
Einar: "Ert þú þar á meðal?"
Ég: "já"
Einar: "Ertu með tölvu í eldhúsinu þar sem þú vinnur og getur verið að þú sitjir eitthvað óvenjulega við hana?"
Ég: "já".
Einar: "Ég ætlað að gefa þér deyfingu með sprautu í vöðvan sem er að angra þig í hálsinum og það gæti verið að þú fengir Ögmund".
Ég: "Takk fyrir það".
Einar: "Ef þú verður ekki orðinn góður eftir viku, komdu þá og fáðu aðra sprautu".

Ég hef ekki fundið fyrir þessum tölvuvírus síðan. En ég veit ekki hvað Ögmundur er.

þriðjudagur, ágúst 05, 2008

Í miðbænum í gær

Salka og Guðni fóru á Selfoss í gær til afa og ömmu. þau fengu að gista og við notuðum tækifærið og fórum út að borða á Ask með Óliver Tuma. Maturinn sem við fengum þar var hálf-misheppnaður. Kjötið seigt og salatbarinn var ekki eins ferskur og áður. Á eftir fórum við í gönguferð um miðbæinn og auðvitað var myndavélin með. Ég smellti nokkrum römmum af fuglunum við tjörnina en Brynja skammaði mig fyrir að vera að mynda mávana, fannst þeir ljótir. Við komum við ða Horninu og köstuðum kveðju á Kobba. Hann var í fullum sving í pizzubakstrinum en gaf sér tíma til að líta upp og brosa í cameruna mína. Síðan fórum við í heimsókn í vesturbæinn til Heklu systur en hún varð fertug á dögunum. Eftir kaffi, spjall og osta var haldið heim á leið með litla mann sem þurfti að fara í háttinn. Fiktaði í tölvunni fram undir tíu og síðan horfðum við skötuhjúin á heimildarmynd sem ég átti á tölvunni um fangana í Guantanamo fangelsinu. Það er nú meira fíflið hann Bush. Ég held að það megi setja hann á stall með Stalín, Hitler og Hussein, svei mér þá.

mánudagur, ágúst 04, 2008

Fæðingabærinn séður frá Rvík

Þessa tók ég í ljósaskiptunum fyrir viku síðan. Skemmtileg stemning og góðir litir í sólsetursmyndum. Sementsstrompurinn sést í fjarska og Snæfellskökull í öllu sínu veldi. Hægt að sjá þessa mynd á Flickr síðunni minni.

Ljósmyndadella

Jæja þá er ég loksins búinn að fjárfesta í almennilegri myndavél. Fyrir valinu varð Canon EOS 450D með 28-75mm Tamron linsu ásamt canon 50mm standard linsu og 5omm Sigma macro linsu. Ég tek myndavélin hvert sem ég fer og reyni að finna góð myndefni. Þær myndir sem ég er ánægðastur með set ég inn á flickr mynda svæðið mitt.

laugardagur, febrúar 23, 2008

Fjöldi = Rað?

Fátt finnst mér eins pirrandi og blaðamaður sem veit ekki hvað hann er að skrifa um. Í þessari frétt er talað um fjöldamorðingja (ens. massmurderer) sem á að hafa myrt gleðikonur. Hann væri vissulega fjöldamorðingi ef hann hefði myrt þær allar í einu. En svo er ekki raunin. hann myrti þær á löngu tímabili, eina í einu. Þess vegna er hann raðmorðingi (ens. serialkiller) sem myrðir eftir ákveðnu minstri. Þetta sé ég oft og finnst alltaf jafn pirrandi að lesa svona vitleysu.

fimmtudagur, desember 20, 2007

Fjarstýringar

Ef ríkidæmi og hamingja manna væri mæld í fjarstýringum þá væri ég auðjöfur.
Ég taldi 14 fjarstýringar á mínu heimili í gær.
Þær fylgja eftirfarandi tækjum:

Apple TV
Sony Heimabíó
MacBook
Apple Hi Fi
Mac Mini
Panasonic Sjónvarp Stofu
United Sjónvarp
Myndlykill Stofu
Myndlykill Herbergi
Nintendo Wii
Sony DVD Spilari
Philips DVD Spilari
Panasonic Sjónvarp herbergi

Gáta dagsins:
Hvernig býr maður til hlýrabol með síðum ermum?

fimmtudagur, desember 06, 2007

Eldhús Heiðaleikans

Ég hef oft verið spurður að því hvaða eldhús ég aðhyllist í matargerð. Mér hefur ekki þótt auðvelt að svara þeirri spurningu, en ég held að ég sé mest hrifin af eldhúsi heiðaleikans. Þá er ég að meina mat sem er ekki að þykjast vera neitt annað en matur. Það er mitt eldhús. Mér þykir mjög forvitnilegt að skoða matseðla á hinum ýmsu veitingahúsum sem liggur auðvitað í hlutarins eðli, þar sem ég matreiðslumaður. Það er mjög mikið og margt skemmtilegt að gerast í veitingabransanum í Reykjavík en stundum sér maður matseðla sem virðast fremur ganga út á að sjokkera matargestinn eða að ganga fram að honum með óhóflegu nýungagirni og orðgljáfurhætti. Oft hef ég lent í því að snæða kvöldverð á veitingahúsi sem er meira í ætt við listasýningu fremur en málsverð. Jafnvel hefur margrétta kvöldverður kallað á heimsókn á Bæjarins Bestu þar sem framreiddur er heiðalegasti réttur landsins, ein með öllu.

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Tryggingar

Ég er búinn að komast að því að það eru enginn takmörk fyrir græðgisvæðingunni sem er í gangi núna hjá öllum fyrirtækjum. Á dögunum tók ég mig til og ákvað að stokka upp tryggingarnar hjá okkur. Við vorum hjá Sjóvá og fór ég með öll yfirlit til ónefnds tryggingarfélags til að freista þess að fá tryggingarnar lækkaðar. Tryggingarráðgjafinn sem var kona, tók á móti mér með bros á vör. Við fóru yfir málið í heild og komumst við að því að það var hægt að lækka tryggingarnar hjá okkur um 55 þúsund krónur á ári. Hún vildi gera nokkrar breytingar. Þar á meðal breyta vægi á milli líf og sjúkdómatryggingar. Sem sagt minnka tryggingarupphæðina á líftryggingu og hækka slysa og sjúkdómatryggingu. Til þess að það væri hægt þá þurfti ég að fara í læknisskoðun. Bara formsatriði sagði hún. “Mér sýnist þú vera mjög vel á þig kominn, kokkurinn ekki einu sinni með ýstru” sagði hún og brosti. Viku seinna fór ég í læknisskoðun og lét lækninum í té þvagsýni og síðar var tekin blóðprufa. Síðan forum við yfir fjölskyldusöguna og spurði hann mig meðal annars um heilsufar systkyna og foreldra. Ég sagði honum að allir væru á lífi og í góðu standi, sjúkdómalaus fjölskylda utan þess að móðir mín hefði lent í slysi fyrir 20 árum og fengið heilablæðingu. Hún væri í kjölfarið öryrki og óvinnufær. 10 dögum seinna hringir rágjafinn síkáti í mig og tilkynnir mér að þetta hafi allt gengið vel nema hvað ég þurfi að borga rúmlega 50 þúsundum meira á ári en við gerðum ráð fyrir, í iðgjöld af slysatryggingunni. Hún hafði ekki svör á reiðum höndum hvers vegna, en ef ég vildi vita það þá væri mér velkomið að hringja í yfirmann þeirrar deildar sem hún til tilheyrði. Ég fékk númerið og hringdi síðar í þennan yfirmann. Jú, hún fletti þessu upp og sá að ásæðan var slys móður minnar fyrir 20 árum! HA! Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Hækkun á iðgjöldum vegna slys móður. Bíddu nú við er ekki einhver villa þarna á ferð. Við erum að tala um slys, ekki sjúkdóm móður minnar. En yfirmaður minn sagði mér að svona væru nú reglurnar og hún þyrfti að fara eftir þeim. Niðurstöður læknisskoðunarinnar kæmu frá dönsku fyrirtæki og þeir mætu það sem svo, að ég væri í meiri hættu til að detta og slasa mig vegna slyss móður minnar. Slys væru sem sagt ættgeng og gengu í erfðir. Ég þarf varla að taka það fram að ég hætti við allt saman. Mér finnst eins og það hafi verið reynt að hafa mig að fifli.

Alveg er ég viss um......

.....að þessi tvö mál tengjast á einhvern hátt:
Skotin fyrir að hringja til útlanda.
Lést þegar farsímarafhlaða sprakk.